12. nóv 2026

Verkfallsaðgerðir samþykktar

Atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) um fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir lauk kl. 18:00 þann 11. nóvember.

Alls greiddu 555 félagsmenn atkvæði af 621 á kjörskrá, eða 89,4% kjörsókn. Niðurstaðan var afgerandi:

  • 520 félagsmenn samþykktu aðgerðir (93,69%).
  • 25 höfnuðu aðgerðum (4,5%).
  • 10 skiluðu auðu (1,8%).

Boðaðar aðgerðir fela í sér ótímabundið verkfall og hefjast kl. 00:01 UTC föstudaginn þann 20. nóvember 2026. Verkfallsaðgerðirnar beinast eingöngu að leiguflugi Icelandair/Loftleiða fyrir þriðja aðila og taka ekki til áætlunarflugs Icelandair.

Með þessari afmörkun leggur FÍA áherslu á að hlífa farþegum í áætlunarflugi Icelandair við röskun, gæta almannahagsmuna og lágmarka áhrif aðgerðanna á íslenskt efnahagslíf.

Atkvæðagreiðslan er skýr vísbending um þann stuðning sem félagsmenn FÍA veita kröfum félagsins í yfirstandandi kjaradeilu við Icelandair. Félagið leggur áfram áherslu á að leitað verði samningslausnar við samningaborðið.