26. nóv 2026

Áskorun Öryggisnefndar FÍA til ríkisstjórnar Íslands

Áskorun til ríkisstjórnar Íslands:

Öryggisnefnd FÍA skorar á stjórnvöld að koma hið fyrsta í veg fyrir að aftur skapist aðstæður eins og þær sem áhöfn björgunarþyrlu Landhelgisgæslu Íslands stóð frammi fyrir þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk djúpt austur af Íslandi þann 25.nóvember s.l.

Það er löngu tímabært að Landhelgisgæslan fái í það minnsta fjórðu þyrluna og það tryggt að ávallt verði tvær öflugar björgunarþyrlur til taks á hverjum tíma. Til að minnka viðbragðstíma til sjós og lands ætti hluti þyrluflota Landhelgisgæslunnar að vera staðsettur utan suðvesturhorns landsins. Hér um öryggi allra landsmanna og sjófarenda að tefla.

Það er ólíðandi að áhöfn björgunarþyrlu skuli sett í þá stöðu að þurfa brjóta reglur um eigið öryggi til að bjarga skipsáhöfn í lífsháska.

ÖFÍA skorar á ríkisstjórn Íslands að tryggja Landhelgisgæslunni fé til rekstrarins þannig að ávallt verði tvær björgunarþyrlur til taks á hverjum tíma.

Öryggi og björgun mannslífa verður að vera í forgangi.

Öryggisnefnd FÍA.