20. nóv 2026

Boðuðum verkfallsaðgerðum frestað um þrjár vikur

Þann 19. nóvember var bókun undirrituð um frestun á boðaðri vinnustöðvun flugmanna hjá Icelandair Group hf. / Icelandair ehf.

Samningsaðilar hafa náð samkomulagi um að fresta boðaðri vinnustöðvun, sem átti að hefjast kl. 00:01 þann 20. nóvember. Verkfallinu er frestað til kl. 00:01 þann 11. desember 2026 og hefur því boðuðu verkfalli verið frestað um þrjár vikur.