22. sep 2026

Stuðningsyfirlýsing

Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) lýsir yfir fullum stuðningi við Flugvirkjafélag Íslands í baráttu þeirra vegna endurnýjunar kjarasamnings félagsins við Icelandair.

Verkföll eru ávallt neyðaraðgerð þegar samningsumleitanir hafa ekki skilað árangri.

FÍA skorar á samningsaðila að leita allra leiða til að finna samningsgrundvöll svo afstýra megi verkfalli.