None
22. maí 2020

Samningur við ICE samþykktur

Flugmenn samþykktu breyttan kjarasamning við Icelandair með yfirgnæfandi meirihluta en rafrænni kosningu lauk kl. 16:00, föstudaginn 22. maí. Þátttakan var 96% en 96.22% þeirra sem svöruðu voru samþykk samningnum og telst hann því samþykktur. 2.6% kusu gegn honum og 1.18% skiluðu auðu atkvæði.

„Það er mikil ánægja að sjá samstöðu okkar fólks á þessum erfiðu tímum. Icelandair er og verður mikilvægur hluti af efnahagslífi Íslands og hryggjarstykkið í öflugri viðspyrnu í kjölfar faraldursins sem lamað hefur flugsamgöngur undanfarna mánuði,“ segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna.