None
16. jan 2019

Aðalfundur og framboðsfrestur

Aðalfundur Félags íslenskra atvinnuflugmanna verður haldinn á Grand Hótel, fimmtudaginn 28 febrúar, 2019, kl. 20:00-23:00.

Á aðalfundi verða varaformaður og þrír meðstjórnendur kosnir. Framboðsfrestur rennur út þann 7. febrúar en framboð skulu berast skriflega til framkvæmdastjóra FÍA á netfangið lara@fia.is. Framkvæmdastjóri tekur við framboðum fyrir hönd stjórnar og kemur áleiðis til stjórnar og kjörstjórnar. 

Sé gengið út frá óbreyttri samsetningu stjórnar getur enginn þriggja meðstjórnenda verið úr hópi Icelandair, með vísan til 16. greinar laga FÍA. Verði nýr varaformaður kosinn, sem ekki vinnur fyrir Icelandair, getur eitt af þessum þremur meðstjórnarsætum farið til Icelandair. 

Frambjóðendum mun gefast kostur á að kynna sig og stefnumál sín í pistli sem birtist í Fréttabréfi FÍA. Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að taka þátt í starfinu að íhuga framboð.