03. nóv 2026

Afmælisfögnuður FÍA

Fimmtudaginn 26. nóvember næstkomandi fagnar FÍA 80 ára afmæli sínu með glæsilegri afmælishátíð í Gamla Bíói.

Þetta eru sannarlega merk tímamót og okkur langar að fagna þeim með félagsmönnum og rifja upp þá sögu, samstöðu og samheldni sem hefur mótað félagið í átta áratugi.

Saga Garðarsdóttir verður veislustjóri kvöldsins, en nánari dagskrá og upplýsingar um veisluna verða kynntar síðar.

Við hlökkum til að sjá ykkur í Gamla Bíói og eiga saman eftirminnilegt afmæliskvöld!

Linkur á skráningu hér: Skráning í 80 ára afmælisfögnuð FÍA

Munið að haka við ef maki kemur með í veisluna eins getið þið skráð ef það eru einhver fæðuofnæmi eða óþol.