Yfirlýsing FÍA vegna niðurfellingar fluga til Norður Ameríku 11.maí 2014
Það er alrangt að flugmenn Icelandair Group standi í skæruaðgerðum gagnvart félaginu.
Flugmenn eru í löglega boðuðum verkfallsaðgerðum sem meðal annars er yfirvinnubann sem felur í sér að menn vinna ekki yfirvinnu.
Sökum seinkana undanfarinna daga hefur vakttími flugmanna riðlast sem hefur valdið keðjuverkandi áhrifum á önnur flug. Icelandair Group er undirmannað nú um þessar mundir og hefur því ekki geta mannað öll þau flug sem áætluð hafa verið.
Icelandair Group tilkynnti um niðurfellingu 10 fluga til Norður Ameríku 11.maí. Af þessum 10 flugum voru 8 þeirra fullmönnuð og lýsir FÍA undrun sinni á þessari aðgerð Icelandair Group en hún er farþegum félagsins sem og hluthöfum til mikils skaða. Með þessari aðgerð og kynningu á henni er verið að fara með rangt mál í fjölmiðlum til þess eins að sverta orð flugmanna. Slík aðgerð er sannarlega ekki til þess að ýta undir lausn þessarar deilu.