09. mar 2026

Aðalfundur FÍA 2026

Aðalfundur Félags íslenskra atvinnuflugmanna verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026, kl. 20:00 í Hlíðasmára 8, Sal Læknafélags Íslands, 201 Kópavogi.

Hefðbundin aðalfundadagskrá fer fram:

DAGSKRÁ

  1. Kynning frambjóðenda.
  2. Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemi félagsins.
  3. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
  4. Lagabreytingar. (*)
  5. Stjórnarkjör.
  6. Kosið í störf þau sem aðalfundi hefur verið falið.
  7. Kosnir skulu tveir skoðunarmenn reikninga.
  8. Kosning í Starfsráð á þriggja ára fresti.
  9. Önnur mál.

Sæti formanns og fjögurra meðstjórnenda eru laus. Sjálfkjörið er í embætti formanns en kjósa þarf í embætti meðstjórnenda.

Eftirfarandi félagsmenn gefa kost á sér embættis formanns og meðstjórnenda. Hægt er að kynna sér frambjóðendur nánar með að smella á hvern og einn hér að neðan.

Formaður:
Jón Þór Þorvaldsson - ICE

Meðstjórnendur:

Alexander Olsen - ICE

Eðvar Ólafur Traustason - ICE

Guðmundur Óskar Bjarnason - ICE

Jónas Þór Guðmundsson - ICE

Vala Gauksdóttir - FÍ

Örnólfur Jónsson - ICE

16.grein laga FÍA segir: "Aðeins 5 félagsmenn frá hverjum samningsaðila FÍA geta tekið sæti í stjórn hverju sinni. Fái fleiri en 5 félagsmenn frá sama samningsaðila FÍA kosningu á aðalfundi skulu einungis þeir 5 er flest atkvæði hljóta taka sæti í stjórn. Þeir frambjóðendur er flest atkvæði hljóta frá öðrum samningsaðilum taka þá sæti í stjórn.

Kjörstjórn tekur ákvörðun um hvaða frambjóðendur teljast sjálfkjörnir í samræmi við ofangreint."

Þar sem formaður og einn meðstjórnandi teljast sjálfkjörnir í samræmi við 16. grein laga FÍA eru þrjú laus sæti í stjórn félagsins. Kosning um þau sæti hefst 19. mars kl. 21:00 og stendur kosning yfir í sjö sólarhringa. Fimm Icelandair flugmenn eru í framboði um þrjú laus sæti. Kosning verður rafræn og fáið þið hlekk til að kjósa þann 19. mars. Athugið að frambjóðendum gefst kostur á að kynna sig á Aðalfundi en svo lokar kosningu kl. 21:00 það kvöld. Hafa ber í huga að aðeins er hægt að kjósa einu sinni og ekki hægt að breyta atkvæði þegar búið er að kjósa.

Léttar veitingar verða í boði eftir fundinn. Vonumst til að sjá sem flesta félagsmenn.