Vala Gauksdóttir

Flugmaður hjá Flugfélagi Íslands - telst sjálfkjörin

Vala Gauksdóttir

Ágætu félagar

Ég er flugmaður hjá Flugfélagi Íslands og býð mig fram til áframhaldandi stjórnarsetu í stjórn FÍA. Ég sit í núverandi stjórn FÍA og í samstarfsnefnd FÍA við Flugfélag Íslands. Ég er einnig í samninganefnd FÍA við Flugfélag Íslands en kjarasamningar hafa verið lausir frá áramótum og ég tel að baráttan fyrir bættum kjörum verði eitt stærsta verkefni þessa árs. Sífellt er verið að sækja að kjörum og starfsumhverfi okkar og því aldrei eins mikilvægt og núna að standa fast gegn þeirri þróun og standa vörð um þau kjör sem búið er að berjast fyrir.

Ég hef áhuga á að halda áfram þessari vinnu í þágu allra félagsmanna FÍA og óska eftir stuðningi þínum til áframhaldandi setu.

Vala Gauksdóttir

Flugmaður hjá Flugfélagi Íslands