Jónas Þór Guðmundsson

Flugstjóri hjá Icelandair

jónas2

Kæru félagar

Það hefur ekki farið fram hjá neinum að það er ókyrrð í lofti. Við flugmenn vitum hins vegar að oft verða lendingar furðu mjúkar í kjölfar aðflugs við slíkar aðstæður.

Síðustu misseri hefur blásið á móti og það er ekkert launungarmál að félagsmenn og stjórn hefðu viljað sjá ýmis mál þróast með öðrum hætti undanfarna mánuði þrátt fyrir þrotlausa vinnu. Það eru ekki bara kjaraviðræður FÍA og Icelandair sem taka sinn toll, flugmenn Air Atlanta felldu á dögunum nýgerðan kjarasamning og þegar þetta er skrifað þá eru kjarasamningar flugmanna Norlandair enn lausir. Þau verkefni sem bíða nýrrar stjórnar eru því mýmörg og kre;jandi.

Það er einnig margt jákvætt í farvatninu og það mun rofa til á endanum. Ég get fullyrt að núverandi stjórn og allir þeir öflugu einstaklingar sem starfa innan stéttarfélagsins hafa unnið að því hörðum höndum að standa vörð um hagsmuni ykkar.

Hópur félagsmanna er fjölbreyttur og því er nauðsynlegt að allar raddir fái að enduróma innan stjórnar FÍA. Ég óska því eftir umboði ykkar til þess að starfa áfram fyrir kröftugan hóp félagsmanna.

Jónas Þór Guðmundsson

Ritari FÍA