
Kæru félagar
Undirritaður hefur nú setið í embætti formanns FÍA í sex ár. Mér þykir afar vænt um það traust sem mér hefur verið sýnt af hálfu félagsmanna til starfans. Ég er þakklátur fyrir allt það góða fólk, bæði félagsmenn og starfsfólk FÍA, sem hefur boðið fram krafta sína til starfa á vettvangi stéttarfélagsins okkur öllum til heilla. FÍA er sterkt og vel skipulagt stéttarfélag sem á allt sitt að þakka félagsvitund og samstöðu okkar flugmanna. Samstaðan er okkar máttur og megin í baráttunni fyrir kjörum okkar og starfsskilyrðum. Á komandi vikum og mánuðum mun reyna á samstöðu og úthald okkar allra í þeirri kjarasamningslotu sem framundan er.
Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til áframhaldandi starfa fyrir ykkur félagsmenn á komandi kjörtímabili minnugur þess að enginn er ómissandi.
Jón Þór Þorvaldsson
Formaður FÍA