Guðmundur Óskar Bjarnason

Flugstjóri hjá Icelandair

Guðmundur Óskar

Kæru félagar,

Fyrir tveimur árum óskaði ég eftir stuðningi ykkar til setu í stjórn FÍA með þá sannfæringu að sterkt félag byggist á trausti, samstöðu og ábyrgð. Á þeim tíma sem ég hef starfað sem meðstjórnandi hef ég fengið dýrmæta innsýn í starf félagsins og enn sterkari sannfæringu um mikilvægi þess að við höfum öfluga og ábyrga rödd fyrir hönd flugmanna.

Ég hef starfað sem flugmaður síðan 2007. Ég hóf feril minn hjá Mýflugi á King Air 200, starfaði síðar hjá Air Atlanta Icelandic á B747-400 og hef starfað hjá Icelandair frá árinu 2015, fyrst sem flugmaður á B757/767/737 og nú sem flugstjóri á B737. Þessi reynsla úr ólíkum hlutum flugrekstrarins hefur gefið mér víðtæka sýn á starf flugmanna og þau málefni sem skipta okkur máli.

Áður en ég kom í stjórn FÍA hafði ég einnig sinnt trúnaðarstörfum fyrir félagið, bæði í skráreftirliti og í trúnaðarráði. Í stjórninni hef ég lagt áherslu á að vera aðgengilegur, hlusta á félagsmenn og leggja mitt af mörkum til að tryggja að sjónarmið flugmanna fái þann sess sem þau eiga skilið.

Þótt gríðarlegur árangur hafi náðst hjá okkar frábæra félagi á undanförnum árum og áratugum megum við ekki sofna á verðinum. Starfsumhverfi okkar er síbreytilegt og mikilvægt að FÍA standi áfram sterkt og sameinað.

Ég tel mikilvægt að halda áfram að vinna að fjölskylduvænna starfsumhverfi, bæta vinnuskipulag þar sem hægt er og tryggja að félagið okkar sé áfram sterkur málsvari flugmanna. Einnig tel ég mikilvægt að FÍA sé öflugt félag fyrir alla flugmenn á Íslandi og að starf félagsins sé sýnilegt og aðgengilegt fyrir félagsmenn.

Ég býð mig fram til áframhaldandi setu í stjórn FÍA vegna þess að ég hef vilja, reynslu og metnað til að halda áfram að vinna fyrir félagið okkar.

Ég óska eftir að halda áfram að standa vaktina – fyrir hönd okkar allra.

Áfram FÍA.

Guðmundur Óskar Bjarnason

Meðstjórnandi FÍA

Flugstjóri Icelandair