Eðvar Ólafur Traustason

Flugstjóri hjá Icelandair

Eðvar

Kæru félagar,

Eðvar Ólafur Traustason heiti ég og býð mig fram til setu sem meðstjórnandi í stjórn Félags íslenskra atvinnuflugmanna.

Samhliða starfi mínu sem flugmaður hef ég lagt áherslu á að taka virkan þátt í félags- og samfélagsmálum. Frá árinu 2022 hef ég setið sem aðalmaður í meirihluta sveitarstjórnar Borgarbyggðar. Þar hef ég gegnt formennsku í fræðslunefnd sveitarfélagsins og var formaður bygginganefndar knattspyrnuhúss og íþróttahúss í Borgarnesi. Ég starfaði einnig áður í sex ár sem formaður og gjaldkeri hjá Körfuknattleiksdeild Skallagríms, þar sem ég öðlaðist dýrmæta reynslu af stjórnarstörfum, skipulagi og ábyrgð. Auk þess hef ég starfrækt sjálfstæðan rekstur um nokkura ára skeið.

FÍA gegnir mikilvægu hlutverki fyrir okkur flugmenn. Framundan eru gríðarlega mikilvægir samningar og ég hef áhuga á að taka þátt í því starfi og leggja mitt af mörkum til áframhaldandi styrkingar félagsins. Ég tel mig hafa mikið hafa mikið fram að færa til félagsins og brenn fyrir að þjóna hagsmunum félagsmanna.

Ég mun gefa mig allan í verkefnið fái ég til þess umboð.

Virðingarfyllst, Eðvar Ólafur Traustason