Alexander Ingi Olsen

Flugmaður hjá Icelandair

Alexander

Kæru félagar,

Ég heiti Alexander Ingi og starfa sem flugmaður hjá Icelandair. Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til stjórnar FÍA og óska eftir stuðningi ykkar.

Að baki mínu framboði liggja tvær meginástæður. Þegar ég hóf feril minn hjá Icelandair 24 ára gamall, sá ég fyrir mér að eyða starfsævinni þar líkt og margir úr minni fjölskyldu hafa gert. Hins vegar hefur þróunin í starfsaðstæðum orðið með þeim hætti að maður er farinn að velta fyrir sér hvort maður muni raunverulega njóta starfsins til lengri tíma, takist manni á annað borð að halda heilsu.

Ég vil leggja mitt af mörkum til að breyta þessari þróun og tryggja að þetta verði áfram vinnustaður þar sem bæði ég og kollegar mínir sjáum okkur fært að starfa alla starfsævi.

Önnur ástæða er að síðan ég hóf minn flugferil fyrir 14 árum hafa öryggismál verið mér hugleikin. Mín skoðun er að flugöryggi er mikilvægasta hagsmunamál flugmanna enda held ég að við getum flest verið sammála því að ekkert ætti að skipta okkur meira máli en að við rötum öll til fjölskyldna okkar heil á húfi að loki dags. Starfsöryggi okkar allra til lengri tíma er jafnframt algjörlega háð því að við sem stétt tryggjum að sama hvað gengur á í rekstri viðsemjenda okkar verði því aldrei leyft að þrengja að flugöryggi eða faglegu sjálfstæði flugmanna.

Í stjórn myndi ég leggja áherslu á að kjarasamningurinn okkar er ekki síður verkfæri til að tryggja flugöryggi sem og lífskjör okkar. Það er með honum sem við komum okkur saman við vinnuveitendur um hvernig má aðlaga ystu mörk reglugerðar að þeim aðstæðum sem ríkja í okkar flugrekstri til að tryggja að skammtíma rekstrarhagsmunir þrengi ekki að sameiginlegum öryggishagsmunum bæði okkar og fyrirtækisins. Það erum við sem berum ábyrgð í fremstu víglínu rekstrarins sem vitum best hvar skórinn kreppir og ef við erum óánægð með stöðu mála þá ber okkur að knýja fram úrbætur og gefa engan afslátt í þeim efnum.

Ég held að með ábyrgri og faglegri nálgun getum við endurbyggt traust og gagnkvæma virðingu við viðsemjendur okkar og tryggt að hlustað sé á okkar raddir í þessu samhengi. Ég býð fram krafta mína í þá vinnu og vona að ég fái traust ykkar til þess verkefnis.

Kær kveðja, Alexander Ingi Olsen