Örnólfur Jónsson

Flugstjóri hjá Icelandair

Örnólfur

Góðir félagsmenn

Ég heiti Örnólfur Jónsson og býð mig fram til stjórnar FÍA á aðalfundi þann 26. mars n.k. Ég starfa sem flugstjóri á Boeing-737Max hjá Icelandair og hef setið í stjórn FÍA síðustu tvö ár.

Störf mín fyrir FÍA byrjuðu reyndar mun fyrr eða árið 1996 u.þ.b. ári eftir ráðningu mína til Icelandair. Hef ég setið með hléum í stjórn félagsins í samtals 10 ár, þar af 4 ár sem formaður og eitt ár sem varaformaður. Sat í stjórn EFÍA í 4 ár og þar af sem formaður í 3 ár. Hef margsinnis setið í og oft leitt samninganefndir við Icelandair og fleiri viðsemjendur FÍA á síðstu 30 árum.

FÍA er mjög öflugt stéttarfélag og félagsmönnum hefur fjölgað umtalsvert síðustu ár og eru nú á níunda hundrað virkir félagar í FÍA. Viðsemjendur eru sex talsins. FÍA býr við góða aðstöðu í eigin húsnæði við Hlíðasmára og hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Þátttaka félagsmanna og vilji til starfa fyrir FÍA hefur verið afar mikill og fjölmargir flugmenn frá öllum okkar viðsemjendum sitja í stjórnum sjóða, nefnda og ráða innan félagsins og því ber að fagna. Vinna þarf að því að svo verði áfram að sem flestum viljugum höndum verði fundinn vettvangur til starfa fyrir félagið og að hæfileg endurnýjun eigi sér stað.

Á aðalfundi verður formaður sjálfkjörinn auk fulltrúa Icelandair innanlands en kosið á milli fimm einstaklinga í þrjú sæti í stjórn. Mótframbjóðendur mínir eru allt ungir og ferskir einstaklingar sem ég þekki af góðu einu. Það sem ég hef fram að færa er mikil reynsla og þekking á starfsemi félagsins, kjarasamningum þess og einlægur vilji til að nýta þá reynslu og þekkingu áfram í störfum fyrir FÍA. Ég tel það vænlegt fyrir félagið að innan stjórnar sé breið þekking og reynsla í bland við aðila sem koma til með að taka við keflinu þegar horft er til lengri tíma. Ég hef átt mjög gott samstarf við núverandi formann og varaformann og ber til þeirra mikið traust.

Kjarasamningar eru sá vettvangur þar sem okkur gefst tækifæri til að sækja fram og tryggja og bæta kjör hvort sem það er talið í greiddum launum eða öðrum lífsgæðum sem kjarasamningar innihalda svo sem orlofi, lífeyri, tryggingum eða flug-, vakt- og hvíldartímareglum. Samningar eru nú lausir við flesta okkar viðsemjendur og viðræður mislangt á veg komnar. Stærsta verkefni komandi missera er því að að klára kjarasamninga og reyna eftir aðstæðum að sækja fram í bættum kjörum.

Samstaðan hefur ávallt verið okkar sterkasta vopn og ófáir sigrarnir unnist með hana að vopni. Mikilvægt er að tryggja að við stöndum áfram saman sem einn maður. Markmiðið er ávallt að gera kjarasamninga í góðri sátt við viðsemjendur okkar báðum aðilum til hagsbóta. Sagan kennir okkur engu að síður að kastast getur í kekki í viðræðum og við þurft að beita þeim vopnum sem okkur eru lögum samkvæmt veitt. Stéttarfélag sem ekki er tilbúið að beita vopnum sínum er einskis virði.

Ágætu félagsmenn. Ég óska eftir stuðningi ykkar við kjör í stjórn FÍA. Ég hvet ykkur til þátttöku í kosningunum og að fjölmenna á aðalfundinn. Það skiptir okkur miklu máli að stjórnin sé vel mönnuð og með góða breidd. Komum samhent og sterk af aðalfundi inn í verkefnin framundan. Áfram FÍA.

Örnólfur Jónsson

Gjaldkeri FÍA