09. mar 2026

Aðalfundur FÍA 2026

Aðalfundur Félags íslenskra atvinnuflugmanna verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026, kl. 20:00 í Hlíðasmára 8, Sal Læknafélags Íslands, 201 Kópavogi.

Hefðbundin aðalfundadagskrá fer fram:

DAGSKRÁ

  1. Kynning frambjóðenda
  2. Stjórnarkjör
  3. Skýrsla stjórnar
  4. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
  5. Lagabreytingar
  6. Kosning skoðunarmenn reikninga FÍA
  7. Kosning fulltrúa í Starfsráð
  8. Önnur mál

Sæti formanns og fjögurra meðstjórnenda eru laus. Sjálfkjörið er í embætti formanns en kjósa þarf í embætti meðstjórnenda.

Eftirfarandi félagsmenn gefa kost á sér embættis formanns og meðstjórnenda.

Formaður:
Jón Þór Þorvaldsson - ICE

Meðstjórnendur:

Alexander Olsen - ICE

Eðvar Ólafur Traustason - ICE

Guðmundur Óskar Bjarnason - ICE

Jónas Þór Guðmundsson - ICE

Vala Gauksdóttir - FÍ

Örnólfur Jónsson - ICE

16. grein laga FÍA segir: "Aðeins 5 félagsmenn frá hverjum samningsaðila FÍA geta tekið sæti í stjórn hverju sinni. Fái fleiri en 5 félagsmenn frá sama samningsaðila FÍA kosningu á aðalfundi skulu einungis þeir 5 er flest atkvæði hljóta taka sæti í stjórn. Þeir frambjóðendur er flest atkvæði hljóta frá öðrum samningsaðilum taka þá sæti í stjórn.

Kjörstjórn tekur ákvörðun um hvaða frambjóðendur teljast sjálfkjörnir í samræmi við ofangreint."

Léttar veitingar verða í boði eftir fundinn. Vonumst til að sjá sem flesta félagsmenn.