Verklagsreglur rafrænna kosninga FÍA

1.       gr.

Verklagsreglur þessar gilda um leynilegar rafrænar kosningar á vegum FÍA. Stjórn FÍA skal sjá til þess að það kosningakerfi sem notað er við rafrænar kosningar uppfylli skilyrði varðandi trúnað og öryggi. Kosningin skal gerð í samræmi við gildandi lög um stéttarfélög og vinnudeilur.

 

2.       gr.

Stjórn FÍA skal skipa 3ja manna kjörstjórn í hvert sinn sem kosningar fara fram. Kjörstjórnin skal úrskurða um vafaatriði og bóka allar ákvarðanir sínar og niðurstöður og skulu þær bókanir geymast með kjörgögnum viðkomandi kosningar í a.m.k. tvö ár. Fulltrúum framboða skal tilkynnt með hæfilegum fyrirvara um fundi kjörnstjórnar og skal þeim heimilt að sitja þá fundi.

 

3.       gr.

Starfsmaður FÍA tekur út lista yfir  kosningabæra félagsmenn sem kjörstjórn fer yfir og samþykkir eða lagfærir eftir sem við á.

 

4.       gr.

Kerfisstjóri fær samþykktan lista, kjörskrá, yfir kosningabæra félagsmenn frá kjörstjórn og skal sá listi innihalda a.m.k. nafn og netfang til samkeyrslu við kosningakóða kerfisins. Kerfisstjóri sér um að senda kjörgögn, þ.e. kosningakóða, leiðbeiningar um kosningu og upplýsingar um það hvenær atkvæðagreiðslu lýkur, á  kosningabæra félagsmenn með tölvupósti. Þeir sem ekki eru með netfang eða rangt netfang skráð munu fá send kjörgögn á skráð lögheimili. Heimilt er að senda kjörgögn í heimabanka félagsmanns. Auglýsingu skal ennfremur birta á heimasíðu FÍA www.fia.is skv. 6. gr., í hvert sinn sem kosning fer fram og hvenær kjörgögn eru send út.

 

5.       gr.

Kjörstjórn er heimilt að tilnefna einn nefndarmann sem trúnaðarmann kjörstjórnar, og er honum heimilt að fylgjast með kerfisstjóra er hann samkeyrir lista og sendir út kjörgögn.

Ef um framboðskosningu er að ræða er frambjóðendum einnig heimilt að vera viðstaddir þegar kjörgögn eru samkeyrð og send út.

 

6.       gr.

Þegar framboðsfrestur er útrunninn og tillögum eða listum hefur verið skilað, eða kjarasamningur er tilbúinn til afgreiðslu, skal kjörstjórn auglýsa atkvæðagreiðsluna á vef félagsins, www.fia.is, og/eða í tölvupósti til félagsmanna. Í auglýsingunni skal koma fram um hvað kosningin er, hvenær hún hefst og hvenær henni mun ljúka,  hvenær og með hvaða hættikjörgögn verða send út til félagsmanna.

 

7.       gr.

Samhliða rafrænni kosningu skal kosningabærum félagsmönnum gert kleift að komast í tölvu og fá til þess leiðbeiningar ef þörf er á, á skrifstofu FÍA.

8.       gr

Að lokinni kosningu skal kjörnefnd senda út úrslit kosningarinnar á heimasíðu félagsins og/eða á tölvupósti til kjósenda. Þar skal koma fram hve margir höfðu kosningarétt, hve margir kusu, hver úrslit voru og hve margir skiluðu auðu.

 

9.       gr.

Að öðru leyti fer um rafrænar kosningar skv. lögum FÍA. Komi upp misræmi á milli þessara verklagsreglna og laga FÍA, eða fundarskapa, gilda lög FÍA og fundarsköp.

 

Samþykkt á stjórnarfundi FÍA 14. janúar 2010



 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.