LÖG FÍA
1.KAFLI: NAFN OG HLUTVERK.
1.grein
Nafn félagsins er: "Félag íslenskra atvinnuflugmanna", skammstafað F.Í.A. Heimili og varnarþing skal vera í í því sveitarfélagi sem starfsstöð félagsins er hverju sinni.
2. grein
Tilgangur félagsins er að:
A: Efla og styrkja samheldni félaga sinna og stuðla að auknum félagsþroska, meðal annars með útgáfustarfsemi.
B: Fara með samninga fyrir hönd félagsmanna um kaup og kjör.
C: Annast samskipti við erlend flugmannafélög og alþjóða- samtök flugmanna.
D: Vinna að öryggismálum flugsins og að tryggja félagsmönnum öryggi við vinnu.
E: Vernda réttindi og hagsmuni félagsmanna í atvinnumálum.
F: Efla þekkingu félagsmanna á starfinu.
G: Veita félagsmönnum aðstoð í veikindum skv. reglugerð sjúkrasjóðs F.Í.A.
3. grein
Félagi getur hver sá orðið sem uppfyllir eftirtalin skilyrði:
A: Hefur leyfi til að starfa á Evrópska efnahagssvæðinu.
B: Er handhafi íslensks/JAA/EASA loftferðaskírteinis er veitir réttindi til atvinnuflugs.
C: Hafi greitt inntökugjald samkv. 36. grein.
Stjórn og trúnaðarráð FÍA geta veitt undanþágu frá framangreindum skilyrðum.
4. grein
Sá er vill gerast félagsmaður í félaginu skal skila skriflegri umsókn til skrifstofu félagsins og er hann þá fyrst fullgildur félagsmaður, er stjórn félagsins hefur samþykkt félagsaðild hans.
Rísi upp ágreiningur um inntökubeiðni, úrskurðar félagsfundur.
5. grein
Atkvæðisbærir eru þeir félagsmenn er starfa hjá íslenskum flugrekanda, samkvæmt kjarasamningi hans við FÍA, og hafa greitt inntökugjald eða lágmarksfélagsgjald samkv. 36. gr. á yfirstandandi eða síðastliðnu almanaksári. Atkvæðisréttur fellur úr gildi eftir að félagsmaður hefur verið atvinnulaus í sex mánuði. Ákvæði þetta gildir þó ekki ef til vinnustöðvunar kemur. Atkvæðisbærir félagsmenn geta á félagsfundum farið með atkvæðisrétt félagsmanna sem eru fjarverandi. Enginn getur farið með umboð fleiri en eins manns. Umboð skulu undirrituð og stíluð á nafn og lögð fram hjá fundarstjóra sem úrskurðar lögmæti þeirra.
6.grein
Þeir sem uppfylla ekki öll skilyrði 3. greinar, svo og þeir sem ekki hafa atkvæðisrétt samkv. 5. grein skulu vera aukafélagar og njóta réttinda samkvæmt 7. grein.
7. grein
Aukafélagar skulu hafa fullt málfrelsi og tillögurétt um málefni félagsins á félagsfundum, en hafa hvorki atkvæðisrétt né eru kjörgengir til starfa í stjórn, trúnaðarráði eða lögboðnum fastanefndum.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skulu þeir aukafélagar er taka lífeyri hafa atkvæðisrétt og kjörgengi í málum er varða Eftirlaunasjóð FÍA.
8. grein
Úrsögn félagsmanns úr félaginu getur einungis átt sér stað:
Ef viðkomandi starfar ekki lengur sem flugmaður hjá íslenskum flugrekanda.
Úrsögn skal vera skrifleg, gerð grein fyrir ástæðu hennar og skal hún afhendast skrifstofu FÍA.
9. grein
Hver sá félagsmaður F.Í.A. sem gegnir trúnaðarstörfum fyrir flugfélag skal ekki á sama tíma gegna trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélag sitt, svo sem sitja í stjórn, samninganefnd, trúnaðarmannaráði eða starfsráði. Undanþegin er Öryggisnefnd.
Trúnaðarstörf teljast eftirtalin störf: Stjórnar- eða varastjórnarstörf flugfélaganna, deildarstjórastörf eða yfirflugmannsstörf.
Stjórn og trúnaðarráð FÍA geta veitt undanþágu frá skilyrðum 1. málsgr.
10.grein
Félagsmönnum, sem sitja í stjórn, varastjórn eða gegna deildarstjórastörfum flugfélaga, er óheimilt að sitja fundi F.Í.A. þar sem kjaramál eru á dagskrá. Undanskilin eru málefni Eftirlaunasjóðs F.Í.A.
2. KAFLI: UM RÉTTINDI OG SKYLDUR, RÉTTINDAMISSI OG BROTTREKSTUR.
11.grein
Réttindi félagsmanna eru:
A: Málfrelsi, kjörgengi tillögu- og atkvæðisréttur á félagsfundum.
B: Styrkir úr sjóðum félagsins eftir því sem ákveðið er í reglugerðum þeirra.
C: Aðstoð vegna vanefnda atvinnurekanda á samningum, lögum og reglugerðum.
D: Réttur til að vinna upp á kaup og kjör er samningar félagsins ákveða hverju sinni.
12. grein
Skyldur félagsmanna eru:
A: Að hlíta lögum félagsins, fundarsköpum, fundarsamþykktum og samningum í öllum greinum.
B: Að gegna trúnaðarstörfum fyrir félagið endurgjaldslaust, nema annað sé ákveðið.
C: Að greiða félagsgjöld til félagsins á réttum gjalddaga.
D: Að gefa stjórn félagsins upplýsingar um hvers konar tilraunir atvinnurekanda til að brjóta eða sniðganga kjarasamninga.
E: Aðhafast ekkert það sem er félaginu til tjóns eða álitshnekkis.
13. grein
Hafi félagsmaður gerst brotlegur við ákvæði 12. gr. getur stjórn F.Í.A., að fengnu áliti Siðanefndar, beitt eftirfarandi refsiákvæðum:
A: Áminningu.
B: Svift félagsmann tillögurétti og fundarsetu um tiltekinn tíma.
C: Svift félagsmann rétti til að gegna trúnaðarstörfum í þágu F.Í.A. um ákveðinn tíma.
D: Vikið félagsmanni úr F.Í.A. um lengri eða skemmri tíma.
Úrskurði stjórnar F.Í.A. má skjóta til félagsfundar, sem hefur endanlegt úrskurðarvald og er sá úrskurður bindandi fyrir alla félagsmenn.
14. grein
Nú er félagsmanni vikið úr félaginu og á hann þá ekki afturkvæmt í það nema inntökubeiðni hans sé samþykkt á lögmætum félagsfundi.
15. grein
Hafi félagsmaður gegnt trúnaðarstarfi fyrir félagið í tvö kjörtímabil eða lengur getur hann skorast undan endurkosningu næstu tvö ár.
3. KAFLI: STJÓRN, TRÚNAÐARRÁÐ, NEFNDIR OG EFTIRLAUNASJÓÐUR FÍA.
16. grein
Stjórn félagsins skipa sjö aðalmenn og tveir til vara, kosnir sam-kvæmt 28. grein. Hlutverkaskipan skal vera þannig: Formaður, varaformaður, meðstjórnendur og varamenn. Stjórnin velur sér gjaldkera og ritara.
17. grein
Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti stjórnar er mættur. Varamenn skal boða á stjórnarfundi. Þeir skulu hafa málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt, nema þeir taki sæti aðalmanns.
18. grein
Formaður kveður til funda og stjórnar þeim. Hann undirritar gerðabækur félagsins og gætir þess að allir stjórnarmenn geri skyldu sína. Hann hefur umsjón með starfsemi félagsins og eftirlit með því að fylgt sé lögum þess og reglum í öllum greinum.
Varaformaður gegnir öllum störfum formanns í forföllum hans.
19. grein
Ritari heldur gerðabækur félagsins og ber ábyrgð á fundargerðum. Hann undirritar gerðabækur félagsins ásamt formanni.
Ritari skal halda til haga í sérstakri bók, gildandi fundarsamþykktum félagsins.
20. grein
Féhirðir hefur á hendi eftirlit með fjárreiðum og innheimtu félagsins og bókfærslu eftir nánari fyrirmælum stjórnarinnar.
21. grein
Stjórn félagsins ræður alla starfsmenn félagsins, ákveður laun þeirra og vinnuskilyrði, ennfremur greiðslur til stjórnar og nefnda.
22.grein
A. Trúnaðarráð skal skipað á eftirfarandi hátt:
-
Aðalmenn stjórnar félagsins og skulu varamenn stjórnar fara með atkvæði stjórnarmanna í forföllum þeirra.
-
Einum fulltrúa fyrir byrjaða 25 félagsmenn á hverjum kjarasamningi FÍA, miða skal við 1.janúar ár hvert. Heimilt er kjörnum trúnaðarráðsmanni sem ekki getur setið fund, að fela öðrum kjörnum trúnaðarráðsmanni að fara með atkvæði sitt, enda sé umboðið stílað á nafn.
Kosning í trúnaðarráð
-
Samstarfsnefndir sjá um kosningar fulltrúa í ráðið á hvern kjarasamning,
-
Kosning skal fara fram eftir aðalfund FÍA. Miða skal við að kosningunni sé lokið innan 45 daga frá aðalfundi.
-
Þar sem samstarfsnefndir eru ekki starfandi skal stjórn FÍA hafa samráð við viðkomandi flugmannahóp um kosningar.
-
Heimilt er að notast við rafræna kosningu.
-
Stjórnarmaður í stjórn FÍA telst ekki eitt sæti í trúnaðarráði á kjarasamning viðkomandi flugrekanda
-
Kjörið trúnaðarráð situr þar til nýtt ráð tekur til starfa.
Trúnaðarráð
-
1) Formaður FÍA skal vera formaður trúnaðarráðs og ritari félagsins ritari þess.
Einungis fullgildur félagsmaður FÍA getur setið í trúnaðarráði.
B: Formaður kveður trúnaðarráð til fundar með þeim hætti er hann telur heppilegast. Einnig telst fundarboðun lögleg standi meira en þriðjungur trúnaðarráðsfulltrúa að henni. Þegar mikilvæg mál liggja fyrir og stjórnin telur of tafsamt að boða til félagsfundar, skal formaður kalla saman trúnaðarráð og bera málið þar upp. Lögmætir eru fundir ráðsins sé meira en helmingur þess mættur, þar af meirihluti stjórnar.
C: Við atkvæðagreiðslu í ráðinu ræður meiri hluti atkvæða. Ákvarðanir sem ráðið tekur skulu vera jafngildar og teknar hefðu verið á félagsfundi. Til að hnekkja ákvörðunum trúnaðarráðs þarf meirihlutasamþykkt félagsfundar.
D: Trúnaðarráð gætir hagsmuna og öryggis félagsmanna vegna starfs þeirra og skal sjá um að samningar félagsins við vinnuveitendur séu haldnir, svo og starfsreglur (OM-A).
E: Láti félagsmenn af störfum sem fulltrúar í stjórn, trúnaðarráði, starfsráði eða sem skoðunarmenn reikninga, skal trúnaðarráð kjósa nýja menn í þeirra stað til næsta aðalfundar.
Trúnaðarráð skal koma saman minnst fjórum sinnum á ári.
23. grein
Fastanefndir, aðrar nefndir og fulltrúar FÍA.
A: Eftirtaldar fastanefndir skulu starfa á vegum FÍA.
- Öryggisnefnd
- Samstarfsnefndir
- Samninganefndir
- Siðanefnd
-
- Fastanefndir skulu skipaðar af stjórn FÍA.
- Fastanefndir skulu standa skil á störfum sínum til stjórnar FÍA og halda fundargerðir.
- Öryggisnefnd og samstarfsnefndir skipa fulltrúa í sínar undirnefndir, ef þörf er á.
B: Hlutverk samstarfsnefnda:
- Að annast eftirfylgni með kjarasamningum viðkomandi viðsemjenda á samningstímanum.
- Að annast kosningar í trúnaðarráð.
- Að fjalla um undanþágur á ákvæðum kjarasamnings á samningstímanum.
- Allar undanþágur á ákvæðum kjarasamnings skulu háðar samþykki stjórnar FÍA.
C: Stjórn FÍA skipar að auki í nefndir og embætti m.a.:
- Alþjóðanefnd (annast erlend tengsl)
- Stoðnefnd
- Skemmtinefnd
- Fulltrúa í stjórn Flugminjasafns Íslands
24. grein
Um eftirlaunasjóð FÍA.
A: Um hlutverk sjóðsins, sjóðfélaga, stjórn, aðalfundi og önnur atriði fer samkvæmt samþykktum hans á hverjum tíma.
B: Stjórn FÍA tilnefnir þrjá aðalmenn, þar af einn úr hópi lífeyrisþega, og þrjá varamenn í stjórn Eftirlaunasjóðsins. Skipunartímabil fulltrúa FÍA í sjóðstjórn er að lágmarki eitt ár, og miðast það við ársfund EFÍA.
4. KAFLI: FUNDIR OG STJÓRNARKJÖR.
25. grein
Aðalfundur skal haldinn fyrir 1. mars ár hvert. Takist ekki að ljúka aðalfundarstörfum á einum fundi skal boða til framhaldsaðalfundar.
Heimilt er að boða til aukaaðalfundar um einstök málefni ef brýna nauðsyn ber til.
26. grein
Verkefni aðalfundar eru:
- Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemi félagsins.
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
- Lagabreytingar.
- Stjórnarkjör.
- Kosið í störf þau sem aðalfundi hefur verið falið.
- Kosnir skulu tveir skoðunarmenn reikninga.
- Kosning í Starfsráð á þriggja ára fresti.
- Önnur mál.
27. grein
Aðalfundur skal boðaður, með dagskrá, með sjö daga fyrirvara og er hann lögmætur ef löglega er til hans boðað, og minnst 10% fullgildir félagsmenn mæta og meirihluti stjórnar. Sé löglega boðaður aðalfundur ólögmætur vegna ónógrar þátttöku félagsmanna skoðast næsti löglega boðaður aðalfundur lögmætur.
Þeir sem gefa kost á sér til þeirra starfa sem kosið er í á aðalfundi, skulu tilkynna stjórn F.Í.A. skriflega um framboð sitt 14 dögum fyrir aðalfund.
28. grein
Fulltrúar í stjórn skulu kosnir á aðalfundi og skal kosning fara fram á eftirfarandi hátt:
-
Kosinn formaður.
-
Kosinn varaformaður.
-
Kosnir fimm meðstjórnendur.
-
Kosnir tveir varamenn stjórnar (1. og 2. varamaður).
29. grein
Nú bjóða fleiri en tveir menn sig fram til embættis formanns eða varaformanns, skal þá kosið tvisvar fái enginn frambjóðenda fleiri en helming greiddra atkvæða. Í síðari umferð skal kosið milli þeirra tveggja er flest atkvæði hlutu í fyrri umferð og skal sá er nú hlýtur fleiri atkvæði teljast rétt kjörinn.
30. grein
Félagsfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda. Félagsfundir skulu haldnir þegar stjórn félagsins álítur þess þörf eða minnst 15% fullgildra félagsmanna óska þess.
Halda skal félagsfundi eigi sjaldnar en þrisvar á ári. Félagsfundur er lögmætur, ef löglega er til hans boðað.
31. grein
Félagsfundum stjórnar fundarstjóri sem fundurinn kýs og kveður hann sér fundarritara. Einnig skal hann tilnefna tvo menn sem sjá svo um að með umboð og atkvæði sé farið samkvæmt félagslögum og skal kjörskrá liggja frammi í upphafi fundar. Fundarstjóri sker úr öllu sem snertir lögmæti fundarins samkvæmt ákvæðum félagslaganna, stjórnar umræðum og meðferð mála á fundum og atkvæðagreiðslum. Atkvæðagreiðslur skulu jafnan vera skriflegar ef tveir eða fleiri fundarmanna óska þess.
32. grein
Félagsfundi skal boða með rafpósti eða bréflega, með dagskrá, og þannig að fundarboð hafi borist viðtakanda tveimur dögum fyrir fund.
Heimilt er að boða til funda með auglýsingum í blöðum, útvarpi og sjónvarpi, símleiðis eða með rafpósti, sé að mati stjórnar, nauðsynleg svo skyndileg fundarboðun að öðru verði ekki viðkomið.
33. grein
Skriflega allsherjaratkvæðagreiðslu skal viðhafa ef:
- Stjórn og/eða trúnaðarráð telja það nauðsynlegt.
- Lögmætur félagsfundur samþykkir það.
Kjörfundur vegna allsherjaratkvæðagreiðslu skal standa minnst í sjö sólarhringa. Allsherjaratkvæðagreiðsla má einnig vera rafræn. Stjórn félagsins skal setja reglur það um.
33. grein A
Kjörstjórn skal skipuð þremur mönnum og einum til vara.
Trúnaðarráð skipar kjörstjórn og formann hennar.
Kjörstjórn skal skipuð eigi síðar en 31.desember ár hvert .
Hlutverk kjörstjórnar er:
- að annast stjórn atkvæðagreiðslna og kosninga á félagsfundum, nema annað sé ákveðið samkvæmt lögum félagsins.
- að annast prentun allra atkvæðaseðla.
- að sjá um að atkvæðagreiðslan fari löglega fram og að fullkomin leynd sé á því hvernig menn greiða atkvæði.
- að telja atkvæði þegar að lokinni atkvæðagreiðslu og úrskurða um vafaatkvæði.
- að sjá um móttöku umboða og ákvarða lögmæti þeirra.
Þegar atkvæðagreiðslu eða kosningu er lokið skal kjöstjórn sjá til að fært sé í fundargerð:
A. Hve margir hafa greitt atkvæði.
B. Úrslit atkvæðagreiðslunnar.
Fjöldi umboða
33. grein B
Stjórn félagsins skal fela kjörstjórn að halda skrá yfir alla félagsmenn sem atkvæðisrétt hafa í sérstaka kjörskrá. Kjörskrá skal liggja frammi eigi síðar en viku fyrir aðalfund, annars samdægurs.
Kærufrestur kjörskrár er til kl 12:00 á kjördegi.
5. KAFLI: UM VINNUDEILUR
34. grein
Ákvörðun um vinnustöðvun skal tekin í samræmi við gildandi lög um stéttarfélög og vinnudeilur. Almenn leynileg atkvæðagreiðsla skal standa í a.m.k. 7 sólarhringa, enda hafi stjórn félagsins auglýst nægilega, hvar og hvenær atkvæðagreiðslan um vinnustöðvunina skuli fara fram.
6. KAFLI: FJÁRMÁL
35. grein
Reikningsár félagsins og sjóða þess er almanaksárið. Reikningar skulu endurskoðaðir af kjörnum skoðunarmönnum reikninga félagsins og liggja frammi á skrifstofu félagsins tíu dögum fyrir aðalfund.
36. grein
Félagsgjöld mega nema allt að 1% af brúttólaunum félagsmanna samkvæmtákvörðun trúnaðarráðs. Stjórn ákveður upphæð inntökugjalds. Lágmarksfélagsgjald skalávalltvera jafnhátt inntökugjaldi. Þeir félagar sem njóta réttinda samkvæmt 7. grein, skulu undanþegnir greiðslu félagsgjalda.
7. KAFLI: LAGABREYTINGAR:
37. grein
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi F.Í.A. enda hafi breytinganna verið getið í fundarboði.
Til þess að breytingin nái fram að ganga verður hún að vera samþykkt með 2/3 hluta greiddra atkvæða, með eða á móti, á lögmætum aðalfundi.
Lagabreytingar samþykktar á aðalfundi, öðlast þegar gildi nema annað sé tekið fram.

