Heilsuvernd sjúkrasjóðs FÍA
Trúnaðarlæknir FÍA, Hannes Petersen, er ekki með fasta viðverutíma í FÍA en félagsmönnum með erindi til hans er bent á að hafa samband við skrifstofu FÍA.
Í desember 2008 fór í gang nýtt heilsuverndarátak á vegum FIA. Að neðan er talin sú þjónusta sem FIA greiðir fyrir. Enn fremur er miðað að því að hafa á netsíðu FIA bitastæðar og skilvirkar upplýsingar og annað lesefni sem miðar að heilsueflingu félaga.
Blóðsýni
Blóðsýni eru tekin í Rannsóknastofu Læknasetursins í Þönglabakka sem er opinn mán-fös 0830-1700. Flugmenn og konur gefa sig fram í afgreiðslunni og segja þeir sé að koma í blóðrannsókn á vegum FÍA. Flugmenn greiða ekkert fyrir fyrstu rannsókn en þurfi að fylgja niðurstöðum eftir með frekari rannsóknum, þá greiða þeir sjúklingagjald viðbótarrannsókna úr eigin vasa.
Lagt er til að félagar fari í blóðrannsókn á 2-3 ára fresti.
MIKILVÆGT ER AÐ REYNA AÐ KOMA FASTANDI Í BLÓÐTÖKU (ca 6 klst)
Eftirfarandi rannsóknir eru gerðar:
- Blóðhagur (Blóðrauði osfrv)
- Blóðfitur
- Blóðsykur
- Lifrarpróf (ASAT, ALAT)
- Nýrnapróf (kreatintin)
- PSA (blöðruhálskirtilskrabbamein) hjá körlum eldri en 50 ára.
Niðurstöður eru sendar í pósti til viðkomandi eins skjótt og unnt er, ásamt ráðleggingum um framhaldið ef með þarf. Einnig er unnt að nálgast niðurstöður með því að hafa samband við Sigurð Árnason lækni gegnum netfangið sigurdurarna@hss.is og í bráðatilfellum í síma +354 8600192
Blettaskoðun
Vel er staðfest að flugmenn hafa hærri tíðni á húðkrabbameinum en algengt er og á þetta sérstaklega um sortuæxli. Húðlæknastöðin er með sérstaka tíma fyrir flugmenn og eru þeir auglýstir hverju sinni. Þeir sem fara í slíka tíma munu vera þátttakendur í hóprannsókn um ástand og þróun húðar hjá flugmönnum.
Einnig er hægt að fara í blettaskoðun í eigin nafni, þ.e. ekki í þessa fyrirfram auglýstu tíma, heldur panta hefðbundinn tíma og nótur skulu svo sendast á sjúkrasjóðinn sem mun greiða inn á reikning viðkomandi félagsmanns, slíkar skoðanir fara ekki í hóprannsóknina. Félagsmönnum er bent á að panta tíma í blettaskoðun í Húðlæknastöðinni í síma 520 4444 kl 9-12 og 13-15 eða í gegnum netfangið timabokun@hudlaeknastodin.is.
Lagt er til að félagar fari í blettaskoðun árlega.
Krabbameinsskoðun hjá Krabbameinsfélag Íslands
Konur eru hvattar til þess að fara í krabbameinsleitina á tveggja ára fresti í leghálsstrok allar konur og einnig í brjóstamyndatöku eftir fertugt. Unnt er að panta sér tíma í Leitarstöð Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, R í síma 540 1919 og greina þá jafnframt frá því að FIA greiði fyrir skoðunina. Einnig er unnt að panta tíma gegnum netsíðu Krabbameinsfélagsins www.krabb.is og trítla á reit ofantil til hægri “Panta tíma í leitarstöðina”. Lagt er til að flugkonur fari í skoðun á tveggja ára fresti.
Ristilspeglun
Mælt er með því að allir fari í ristilspeglun eftir fimmtugt. Samið hefur verið við Jón Örvar Kristinsson, meltingarlækni, um að það hafa umsjón með verkinu. Unnt er að panta sér tíma hjá honum í gegnum netfangið jonorvar@internet.is. Lagt er til að allir félagar fimmtugir og eldri fari óhræddir í þessa skoðun. Finnist ekkert sjúklegt og ef engin saga er um ristilkrabbamein í ætt þá þarf ekki að endurtaka skoðun fyrr en eftir 5-10 ár.
Hjartarannsókn og álagspróf
Allir félagsmenn yfir fertugt eru hvattir til að fara í hjartarannsókn og álagspróf hjá Hjartavernd. Til að bóka tíma skal einfaldlega hafa samband við Hjartavernd í síma 535 1800 og taka fram að þú sért félagsmaður í FÍA, þá er tíminn án endurgjalds.
Heyrnartappar með hljóðsíu
Sjúkrasjóðurinn greiðir að fullu fyrir hljóðsíur frá EarFoon. Pantið tíma hjá Einari Jóni Einarssyni í síma 866 8500 eða á netfang eje2@hi.is og hann tekur mát og pantar tappana. Afgreiðslutími er 7 vikur.
Tæknifrjóvgun og ættleiðing
Sjúkrasjóður FÍA styrkir frá 1. apríl 2010 félagsmenn er þurfa að fara í tæknifrjóvgun, hvort sem um er að ræða félagsmann eða maka hans. Styrkurinn er kr. 50.000,- og greiðist fyrir allt að þrjú skipti á almanaksári. Einnig er styrkur upp á kr. 150.000,- fyrir ættleiðingu.

