Orlofshúsasjóður
Orlofshúsasjóður FIA hefur það hlutverk að sjá um rekstur og útleigu á orlofshúsum félagsins. Í dag eigum við 4 hús, 2 í Reykjaskógi í Biskupstungum, eitt í Húsafelli í Borgarfirði og eitt í Kjarnaskógi við Akureyri. Einnig erum við með íbúð á leigu við Hafnarstræti á Akureyri. Við leigjum út 4 tjaldvagna yfir sumarmánuðina.
Þetta eru félagsbústaðir og því er mikilvægt að ganga vel um og þrífa vel eftir sig því ef það er ekki gert þá lenda þrif á þeim félaga sem á eftir þér kemur. Útleiga fer fram í gegnum vefsíðu FIA. Orlofshúsum er úthlutað eftir punktakerfi á sumrin og einnig um páska.
Nánari lýsingu á húsum geta félagsmenn fengið með því að innskrá sig og smella á Sumarhús hér til vinstri.

