Öryggisnefnd FÍA

Öryggisnefnd FÍA er ein af fjórum fastanefndum FÍA. Nefndin starfar á faglegum grunni og er ætlað að takast á við mál er varða öryggi flugmanna. Nefndin er skipuð af stjórn FÍA en er að öðru leiti sjálfstætt starfandi. Í nefndinni sitja sex félagsmenn FÍA og eru þeir bundnir þagnarskyldu um það sem þeir komast að í starfi sínu fyrir nefndina og leynt á að fara. Nefndin er með fasta fundartíma fyrsta fimmtudag í mánuði.


Útdrátt úr fundargerðum nefndarinnar má nálgast á innra vef félagsins undir FRÉTTIR OG FUNDARGERÐIR.

Vinnuverndarnefnd FÍA

Vinnuverndarnefnd var sett á laggirnar árið 2010 og eru fundargerðir hennar einnig undir FRÉTTIR OG FUNDARGERÐIR.

Nefndin hefur samið um afslætti t.d. í líkamsrækt og er hægt að sjá upplýsingar um það undir liðnum AFSLÆTTIR sem er að finna undir liðnum FUNDARGERÐIR á læstu svæði vefsins.



 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.