Um íslensk flugfélög
Birtist í 24 stundum þann 1. september 2009
Fréttir um uppsagnir hjá Icelandair síðustu mánuði hafa endrum og eins velt upp spurningum fréttamanna um hver staðan sé hjá Iceland Express. Í frétt RÚV í gærmorgun um málið var haft eftir framkvæmdastjóra Iceland Express að engar uppsagnir á flugmönnum væru á döfinni hjá félaginu. Merkilegt? Nei, því það eru engir flugmenn starfandi hjá Iceland Express og hafa aldrei verið. Fyrirtækið selur farmiða með erlendum flugfélögum, en hefur gert kjarasamning við Flugfreyjufélag Íslands um störf þeirra um borð. Iceland Express er nefnilega ekki flugfélag og persónulega dreg ég í vafa lögmæti þess að fyrirtæki sem ekki er með leyfi til flugrekstrar frá Flugmálastjórn, skuli óhindrað ráða til sín flugfreyjur- og þjóna eða flugliða eins og það heitir í reglugerð.
Hvað varðar uppsagnir flugmanna hjá Icelandair er sorglegt hversu litla áhættu fyrirtækið er reiðubúið að taka gagnvart starfsmönnum og gengur hart fram í að fækka um leið og útlit er fyrir minni verkefni. Þá getur það varla verið góð lenska í mannauðsfræðum að segja starfsfólki upp vinnunni, þegar allar líkur eru á að þörf verði á þeim aftur örfáum mánuðum seinna. Auðvitað er aftur á móti eðlilegt að starfsmannafjöldi fylgi verkefnastöðu, en spurning hversu afgerandi og fljótt það á að vera. Stéttarfélag flugmanna á Íslandi er með kjarasamning við þrjú flugfélög innan Icelandair Group; Icelandair er langstærst með yfir 300 flugmenn þegar mest var í sumar. Hin eru Bláfugl og Flugfélag Íslands. Icelandair Group rekur líka flugfélögin Latcharter og Travel Service. Í því árferði sem nú ríkir eiga stjórnendur Icelandair Group að sýna samstöðu með íslenskum flugmönnum sínum og bjóða þeim störf hjá þessum félögum. Hví eiga íslenskir atvinnuflugmenn einir að taka skellinn?
Íslenska flugfélagið JetX (Primera Air) sem flýgur m.a. fyrir Heimsferðir hefur mér vitanlega ekki ráðið einn einast Íslending til starfa. Félagið er án kjarasamnings við stéttarfélag flugmanna á Íslandi og beinlínis meinar flugmönnum um vinnu á grundvelli þjóðernis og ótta fyrirtækisins við afskipti stéttarfélags. Það virðist því lítil von um vinnu þar.
Jóhannes Bjarni Guðmundsson
Formaður Félags íslenzkra atvinnuflugmanna (FÍA).

