Það ríkir hörð samkeppni um flugfarþega á Íslandi og ekki hvað síst núna þegar virðist kreppa að í fjárhagi almennings og hátt eldsneytisverð að sliga fólk og fyrirtæki. Það er mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir hvað flugfarþegar eru að kaupa í farmiða og hvað þau fyrirtæki sem selja miðann standa fyrir. Fyrirtækið Iceland Express kallar sig lágfargjaldaflugfélag, en er ekki flugrekandi, sem sagt handhafi flugrekstrarleyfis frá Flugmálastjórn Íslands. Það þýðir að Iceland Express býr ekki við þær kvaðir eða skyldur sem almennt tíðkast um þau fyrirtæki sem kalla sig flugfélög. Þegar þú kaupir farmiða með Iceland Express ertu að í raun að kaupa farmiða með erlendum flugfélögum. Flugfélög sem fljúga undir merkjum Iceland Express eru t.d. svissneska flugfélagið FlyHello og breska félagið Astreus. Þau eru bæði með útgefin flugrekstrarleyfi í sínu heimalandi, FlyHello í Sviss og Astreus í Bretlandi. Engir flugmenn sem vinna hjá þessum félögum starfa samkvæmt íslenskum kjarasamningi...
Lesa meira