Fréttir

Aðgerða þörf í komusal Leifsstöðvar

7.1.2008

Ferðalangar sem eiga leið um Keflavíkurflugvöll eiga orðið í vandræðum með að komast leiðar sinnar í komusal flugvallarins á háannatímum. Ástandið er hvað verst síðdegis þegar margar vélar streyma inn á svipuðum tíma frá Evrópu. Margir farþegar eru sóttir á flugvöllinn og oft margt um manninn í komusalnum þar sem fólk bíður eftir vinum og ættingjum. Oft á tíðum skapast þannig ástand að ferðalangar sem koma í gegnum tollinn eiga erfitt með að komast leiðar sinnar vegna fólkfjöldans í salnum sem skipar þéttan vegg umhverfis dyr tollgæslunnar. Það virðist orðið tímabært fyrir yfirvöld á Keflavíkurflugvelli að huga að því að gera einhverjar ráðstafanir í komusalnum. Til dæmis mætti afmarka geinilega útgönguleiðir líkt og tíðkast í flestum alþjóðlegum flugstöðvum, og tryggja þannig að komufarþegar komist greiðlega út úr byggingunni.


Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.