Fréttir

Nýjar reglur EU um hvíld flugmanna ? Skárri, en ekki öruggar ennþá ?

FRÉTTATILKYNNING

18.1.2012

deadtiredÞann 18. janúar voru gefin út drög að nýrri reglugerð hjá EASA, European Aviation Safety Agency, til að berjast við þreytu flugmanna og flugöryggi tengt því. Þó gerðar hafi verið nokkrar nauðsynlegar breytingar frá eldri drögum frá desember 2010, þá þarf að gera meira til að verja öryggi flugfarþega. Vísindarannsóknir gefa til kynna að nauðsynlegt er að setja reglur um vakt- og hvíldartíma flugmanna til að öruggt sé að þeir séu vel vakandi til að koma farþegum sínum öruggum á áfangastað. Enn og aftur lítur EASA fram hjá slíkum rannsóknum í lykilatriðum þessa frumvarps. “Hagsmunaaðilar sendu um 50.000 athugasemdir á fyrstu drög EASA á reglugerðinni í desember 2010 og sendu því skýr skilaboð til höfunda hennar: þetta frumvarp er gallað, það verður að breytast, byggjast á vísindalegum grunni” segir Nico Voorbach formaður flugmannasambands Evrópu, ECA. “Drögin sem gefin eru út í dag innihalda margar jákvæðar breytingar. Þó eru mörg áríðandi atriði ennþá inni, eins og óhóflegur leyfilegur vinnutími í kjölfar bakvaktar. Ef ekkert breytist gæti flugmaður þurft að lenda farþegaþotu eftir 20-21 klst. vakttíma. Þetta er ekki það sem farþegar eiga skilið! Farþegar og flugmenn vænta þess að lögvald EU setji sterk og örugg lög í þágu almennings.”“EASA réð þrjá vísindamenn til að fara yfir drög sín að þessum reglum; því miður virðist sem EASA hafi valið að líta framhjá flestum athugasemdum þeirra þar sem það gæti verið óhagstætt flugfélögunum” skýrir framkvæmdastjóri ECA, Philip von Schöppenthau. “Til dæmis voru vísindamennirnir sammála um að næturflug væru sérstaklega þreytuvaldandi og ættu að vera takmarkaðar við 10 klst. flugvakttíma. Þrátt fyrir það gefur EASA leyfi á 11 klst. Slíkar tillögur – og það eru margar fleiri – eru gegn stjórnarskrá EASA, gegn sjálfsögðum gildum og kannski aðallega gegn rétti farþega að vera eins öruggir og mögulegt er í sínu flugi. EASA getur og verður að gera betur!”                                                       Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við:Nico Voorbach, ECA President, Tel: +32-491-37.89.82Philip von Schöppenthau, ECA Secretary General, Tel: +32-2-705.32.93 Kíktu á glænýja vefsíðu og horfðu á baráttumyndina okkar

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.