Fréttir

Ráðstefna um EYJAFJALLAJÖKUL OG FLUGIÐ

Keflavíkurflugvelli, Ásbrú, 15.-16.september, 2010

3.8.2010

Flugakademía Keilis heldur í haust ráðstefnu í samvinnu við ýmsa aðila þar sem fjalla á um eldgosið í Eyjafjallajökli og áhrif öskufalls á flugrekstur. Ráðstefnan er eintakt tækifæri fyrir bæði Evrópska og Bandaríska aðila til að hittast og ræða hvað hefði mátt fara betur og bera saman bækur sínar.

Forráðamönnum í flugrekstri, vísindamönnum og fulltrúum opinberra aðila frá Bandaríkjunum, Evrópu, Kína og Rússlandi hefur verið boðið á ráðstefnuna sem verður haldin dagana 15. og 16. september á gamla varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll sem nú heitir Ásbrú.

Á ráðstefnunni verður leitast við að svara spurningum eins og:

  • Hvað gerðist í Eyjafjallajökli?
  • Af hverju lokaðist lofthelgi Evrópu?
  • Hvaða reglum var fylgt?
  • Hvaða lærdóm má draga af þessum vanda?
  • Er hægt að draga úr áhrifum öskufalls á flugumferð?
  • Hverjir þurfa að taka hvaða skref til þess að minnka áhrif öskufalls á flugumferð og öryggi?

Fyrirlesarar flytja mál frá hinum ýmsu hliðum og má meðal annars nefna flugumferðastjórnir, flugfélög, flugstofnanir eins og AEA, ICAA, European Commission og NASA. Einnig munu vísindamenn ræða um eldgos og hvernig má mæla öskufall og hvernig hún dreifist.

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, er verndari ráðstefnunar. Heiðursgestur er hinn þekkti Capt. Eric Moody, flugstjórinn sem stýrði B747 vélinni út úr öskuþoku yfir Java 24.júní 1982.

Á ráðstefnunni verða tækifæri til að hitta samstarfsmenn víðsvegar að meðal annars á kvöldverðinum og kynnisferðunum sem verða að Eyjafjallajökli. Við mælum með að þú staðfestir þáttöku þína strax með því að hafa samband við okkur í gegnum conferences@keilir.net eða í síma 664 0160



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.