Fréttir
Skrifað undir nýjan kjarasamning við Flugfélag Íslands
Nú í dag var skrifað undir nýjan kjarasamning flugmanna Flugfélags Íslands. Samningurinn verður kynntur á þriðjudagskvöldið rafræn atkvæðagreiðsla mun hefjast í kjölfarið, en hún mun standa í 7 daga. Samningurinn er í takt við aðra samninga sem FÍA hefur gert á síðustu vikum og gildir út janúarmánuð 2011 verði hann samþykktur.

