Fréttir
IFALPA hættir að bjóða skírteinistryggingu
Stjórn Alþjóðaflugmannasambandsins, IFALPA, hefur tekið ákvörðun um að leggja niður skírteinistryggingu sem sambandið hefur boðið í um 60 ár. Ástæðan mun vera að þeim þykir hún orðin óþörf þar sem mörg tryggingafélög eru farin að bjóða samskonar tryggingu. Þeir sem þegar er með trygginguna mun verða boðið að færa hana undir Loyds tryggingafélagið. FÍA er um þessar mundir að semja við tryggingaráðgjafa til að taka að sér utanumhald um þessi mál fyrir hönd félgasmanna FÍA.

