Fréttir

ECA gagnrýnir drög ESB að breyttum lögum um rannsókn flugslysa

1.3.2010

Nú er unnið er að breyttum lögum Evrópusambandsins um rannsókn flugslysa. Evrópsku flugmannasamtökin ECA (European cockpit association) óttast að miðað við fyrirliggjandi drög muni sambandinu ekki takast ætlunarverk sitt, þ.e. að renna styrkari stoðum undir flugslysarannsóknir og auka þannig flugöryggi. Flugslysarannsóknir eru lykilþáttur í að hægt sé að læra af mistökum og koma í veg fyrir að sambærileg slys hendi aftur. Til að flugslysarannsóknir nái markmiði sínu, þarf skýra lagaumgjörð um vernd þeirra gagna sem rannsakendur komast yfir í samvinnu við alla sem hlut eiga að máli. ECA sendi frá sér fréttatilkynningu um málið sem hægt er að sjá í heild sinni hér.

Svipuð staða á Íslandi:

FÍA hefur gagnrýnt harðlega fyrirliggjandi drög að breyttum lögum um rannsókn flugslysa hér á landi, en breytingatillögurnar eru um margt keimlíkar því sem ESB er að vinna. Meiri refsitónn á kostnað verndun gagna og upplýsinga.

Fram kemur í athugasemdum FÍA til samgöngunefndar Alþingis sem sendar voru í janúar s.l. að verði ekki tekið tillit til ábendinga FÍA og flugrekenda gæti núverandi sátt um þennan málaflokk beðið hnekki. Í yfirlýsingu frá stjórn FÍA frá því í október s.l. kemur einnig fram að ef ekki ríkir sátt um lagaumhverfið er varðar rannsóknir flugslysa geti það leitt til þess að dragi úr trausti og samstarfsvilja flugmanna til að tjá sig við rannsóknarnefndina, sem muni hafa stórskaðleg áhrif á framgang flugslysarannsókna og þar með almennt flugöryggi.

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.