Fréttir
Flugmenn Icelandair samþykkja kjarasamning
Flugmenn Icelandair samþykktu nýgerðan kjarasamning við Icelandair í atkvæðagreiðslu sem lauk á miðnætti í gær. Samningurinn var samþykktur með 70% atkvæða þeirra sem tóku afstöðu, en rétt tæplega 30 af hundraði höfnuðu samningnum. Samningar höfðu verið lausir síðan um mánaðamótin janúar - febrúar 2009, en nýi samningurinn gildir fram í ársbyrjun 2011.

