Fréttir

Stefnir í kosningar á aðalfundi FÍA

28.1.2010

Frestur til að skila framboðum til stjórnar og trúnaðarráðs FÍA lýkur í dag, 14 dögum fyrir aðalfundinn sem haldinn verður 11. febrúar. Nú þegar hafa nokkur framboð borist og stefnir í spennandi aðalfund.   Stjórn FÍA hefur skipað fjögurra manna kjörnefnd til að halda utan um framkvæmd kosninga á aðalfundinum.   Þá er stjórn FÍA að leggja lokahönd á tillögur að breyttum lögum FÍA, sem tekur mið af tillögum frá laganefnd og fleiri nefndum innan FÍA.  Lagabreytingar verða kynntar og sendar út með fundarboði .   Listi yfir þá sem bjóða sig fram til trúnaðarstarfa verður sendur út á næstu dögum og ráðgert er að gefin verði út kosningaútgáfa af fréttabréfi þar sem frambjóðendum gefst kostur á að kynna sig og sín stefnumál.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.