Fréttir

Tveggja daga Dale Carnegie námskeið

Starfsmenntasjóður

8.1.2010

Víðsýnir og metnaðargjarnir einstaklingar eru meðvitaðir um mikilvægi þess að sýna frumkvæði, búa yfir stjórnunarhæfileikum og geta komið sjónarmiðum sínum skilmerkilega á framfæri til að mæta hinum ströngu og síbreytilegu kröfum dagsins í dag. Á Dale Carnegie‚ námskeiðinu tekurðu þátt í verkefnum sem bæta samskipti þín við aðra, skerpa minnið og gera þig að trúverðugum leiðtoga. Þú þarft reglulega að stíga út úr þægindahringnum en það hjálpar þér að vinna bug á ótta og hræðslu við gagnrýni og losar um hömlur. Sannast sagna má líkja því við að þú kastir af þér gömlum og þungum frakka sem hefur íþyngt þér um áraraðir og finnir hvernig þú öðlast hugrekki og langþráð frelsi til að bera þig eftir framtíðarmarkmiðum þínum.

5 drifkraftar velgengninnar
Á Dale Carnegie námskeiðinu gefst þér kostur á að byggja upp hæfileika þína á fimm sviðum. Þetta eru í raun drifkraftar velgengninnar og markmið námskeiðsins er að:

1) Efla sjálfstraustið
2) Bæta hæfni í mannlegum samskiptum
3) Efla tjáningarhæfileikana
4) Þróa leiðtogahæfileika
5) Bæta lífsviðhorf okkar

Á námskeiðinu lærirðu þau grundvallaratriði sem eru lykillinn að allri velgengni og þú kemst upp á lag með að nýta þau í daglegum athöfnum.  Þú hefur öðlast traustan grunn til að öðlast enn frekari þroska og hæfileika til að blómstra á þeim vettvangi sem þér hentar.

 

Hvenær: 27. og 28. janúar 2010

Lengd: 8 tímar, 2 dagar í röð

Hvar: Húsnæði Dale Carnegie Ármúla 11

Verð: 10.000,- fyrir félagsmenn FÍA

Skráning á starfsmenntasodur@fia.is



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.