Fréttir

Útkallsdagur - Flugmenn kalla eftir bættu regluverki Evrópusambandsins

(ECA ? ACTION DAY 5. október)

3.10.2009

Evrópusamband flugmanna (ECA – European Cockpit Association) mun standa fyrir mótmælum 5. október n.k.. Mótmælin beinast að veiku regluverki Evrópusambandsins um flug-, vakt- og hvíldartíma flugáhafna, sem samtökin telja brýnt að laga – í þágu flugöryggis.  

Til að tryggja reglur um samræmt flugöryggi í Evrópu þarf Evrópusambandið að sýna kjark og taka mark á vísindalegum niðurstöðum. 

 

Fyrir um einu ári birti Evrópusambandið ítarlega skýrslu vísinda- og læknanefndar helstu stofnana sambandsins.  Niðurstaða skýrslunnar er í megindráttum að núverandi reglur um hámarksvaktir og fleira varðandi vinnutíma eru ekki í lagi. 

Þrátt fyrir þessa vitneskju hefur Evrópusambandið ekki enn tekið tillit til niðurstöðu skýrslunnar.

 

Flugmenn efna af þessu tilefni til útkalls mánudaginn 5. október til að mótmæla og knýja á um breytingar. Stærstu mótmælin fara fram þegar Evrópuþingið kemur saman í Brussel en einnig á flugvöllum vítt og breitt um álfuna.  Íslenskir atvinnuflugmenn sýna samstöðu með evrópskum félögum sínum og verða á Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli þennan dag til að kynna málið. 

Markmiðið er aðeins eitt – flugöryggi fyrir alla.

 

Nokkur atriði til umhugsunar úr gildandi reglugerð:

? Tveir flugmenn mega vera á vakt í 14 klst að degi til – þ.e. við stjórnvölinn við stýrin á flugvél í allt að 13 klst. 

Vísindanefndin telur þetta of mikið og beri að minnka.

 

? Næturvakt flugmanna (vakt hefst milli kl. 22 og 04:59) má vera 11:45. 

Vísindanefnd telur að þetta eigi að vera að hámarki 10 klst.

 

? Samanlagður vakttími í hverri viku má vera 60 klst.  Þetta þýðir 180 klst á 21 degi.  Vísindanefndin telur þetta of mikið.  Mælt er með takmörkun sem nemur 100 klst vakttíma á hverjum 14 dögum. 

 

? Bakvaktir (þar sem flugmaður er reiðubúinn til útkalls með litlum fyrirvara) takmarka ekkert lengd flugvaktar. Þ.e. flugmaður sem búinn er með t.d. 12 klst bakvakt getur í lok hennar farið beint á hámarksvakt samkvæmt reglugerð (max 14 klst).

Vísindanefndin telur eðlilegt að bakvaktin takmarki hámarksvaktina ef til útkalls kemur. 

 

Nánari upplýsingar fást á, www.dead-tired.eu

 

Einnig hjá Kjartani Jónssyni framkvæmdastjóra FÍA, 824-8070 eða Jóhannesi Bjarna Guðmundssyni formanni FÍA 899-3804. 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.