Fréttir
Yfirlýsing frá FÍA - lög um samgönguslys
Stjórn Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) sendi í dag eftirfarandi yfirlýsingu til samgönguráðherra vegna fyrirliggjandi frumvarps til laga um rannsókn samgönguslysa.
YFIRLÝSING
Stjórn Félags íslenskra atvinnuflugmanna(FÍA) lýsir því hér með yfir, f.h. flugmanna stéttarfélagsins, að hún getur ekki ábyrgst framhald á því góða samstarfi við flugmálayfirvöld varðandi flugslys og flugatvik, sem áunnist hefur undanfarin ár, verði að lögum á Alþingi, frumvarp það til laga um rannsókn samgönguslysa, sem ráðneytið er nú með til meðferðar.
Stjórn FÍA hefur áður með bréfi dags. 3. apríl 2009, lýst afstöðu sinni og alvarlegum áhyggjum af framgangi þessa máls, en ráðuneytið hefur ekki séð ástæðu til að leita eftir frekari samvinnu við hana um málið.
Ef ekki ríkir sátt um lagaumhverfið er varðar rannsóknir flugslysa getur það leitt til þess að dragi úr trausti og samstarfsvilja flugmanna til að tjá sig við rannsóknarnefndina, en það mun hafa stórskaðleg áhrif á framgang flugslysarannsókna og þar með almennt flugöryggi.
Stjórn FÍA vísar allri ábyrgð á afleiðingum þessa máls á hendur ráðuneytinu.
Frekari upplýsingar um málið veita: Kjartan Norðdahl hdl. og fyrrverandi flugstjóri í síma 897-1818, og Jóhannes Bjarni Guðmundsson formaður FÍA í síma 899-3804.

