Fréttir

Icelandair afturkallar uppsagnir

19.9.2009

Icelandair afturkallaði nú fyrir helgi 14 uppsagnir flugmanna til viðbótar við þær 10 sem afturkallaðar voru fyrir síðustu mánaðarmót. Það eru því 24 uppsagnir af þeim 32 uppsögnum sem sá hópur fékk sem var í vinnu síðastliðinn vetur. Þá eru 8 enn með uppsagnabréf upp á arminn en þar sem einn þeirra sem afturkallaðir voru er á leið í launalaust leyfi mun einn detta inn í vinnu til viðbótar.

FÍA fagnar því að verkefnastaða félagsins sé að batna og vonir eru bundnar við að leiguflugsdeild Icelandair nái að útvega verkefni fyrir þær þotur og sem mest af þeim mannskap sem enn vantar eitthvað á sína könnu.

Icelandair hefur lýst yfir stefnubreytingu í starfsmannamálum áhafna og mönnun á varavaktir verði aukin og flugmenn látnir njóta vafans meira en gert hefur verið hingað til og segja hluta þessara afturkallana nú vera byggða á því að verkefni fáist sem von er um en þó eru ekki alveg frágengin. Ef rétt er þá er það hið besta mál fyrir okkur flugmenn og væntanlega kemur það fljótt í ljós eftir næstu mánaðarmót hvort varamannskapur sé í raun til staðar þegar á reynir.

Þess ber að geta að nokkrir flugmenn Icelandair eru nú komnir í launalaust leyfi og farnir í tímabundið starf hjá Air Atlanta, en þar á bæ er verið að taka í notkun þrjár nýjar Boeing 747-400 júmbó þotur sem eru þá alls orðnar fimm talsins. Útreikningur á áhafnaþörf Icelandair miðast við að þessir menn komi til baka eftir áramótin þar sem ekki liggur annað fyrir eins og málin standa í dag.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.