Fréttir
FÍA afhendir Flugsafni Íslands gjöf ásamt munum til varðveislu
Föstudaginn 7. ágúst s.l. afhentu Jóhannes Bjarni Guðmundsson, formaður, og Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri, Flugsafni Íslands á Akureyri sögu FÍA að gjöf ásamt flugmannatali. Ritin voru árituð með skrautskrift eftir Stefán Friðleifsson, flugstjóra Air Atlanta. Einnig voru afhentir munir til varðveislu sem hafa verið í umsjá FÍA um nokkurt skeið, þar er um að ræða flugskírteini #2 og ýmsir hlutir sem voru í eigu Björns Eiríkssonar heitins, flugstjóra. Gestur Einar Jónasson, safnstjóri Flugsafns Íslands veitti mununum viðtöku og lýsti yfir ánægju sinni með bæði gjöfina sem og merka safngripi. Ljósmynd: Hörður Geirsson.

