Fréttir
Kjartan Jónsson ráðinn framkvæmdastjóri FÍA
Nokkrar skipulagsbreytingar eru að verða á skrifstofu FÍA frá og með deginum í dag 4. ágúst.
Nýverið var gengið frá ráðningu Kjartans Jónssonar í stöðu framkvæmdastjóra FÍA. Kjartan er ágætlega kunnugur starfsemi stéttarfélagsins. Hann hefur um nokkurt skeið verið ritstjóri Fréttabréfs FÍA og starfaði sem flugmaður hjá Icelandair. Þá hefur hann einnig annast umsjón með vef FÍA og mun gera það áfram.
Á sama tíma er Kjartan Norðdahl að hætta sem framkvæmdastjóri FÍA. Gerð hefur verið breyting á hans starfssamningi í þá veru að hann sinni áfram tilteknum sérverkefnum fyrir stéttarfélagið þar sem hans þekking á sviði lögfræði nýtist félaginu vel.

