Fréttir

Alfreð Elíasson & Loftleiðir

26.5.2009

Þegar Félags Íslenskra Atvinnuflugmanna var stofnað árið 1946 var Alfreð Elíasson einn af stofnfélögum þess . Hann hafði þá ásamt tveimur félögum sínum stofnað Loftleiðir hf, tveimur árum áður.  Alfreð var fyrstu 8 ár FÍA ýmist einn af stjórnarmönnum þess eða endurskoðendum eða allt fram til ársins 1954. 

Sambíóin í Kringlunni sýna nú heimildamynd um Alfreð Elíasson og Loftleiðir eftir Sigurgeir Orra Sigurgeirsson.  Myndin segir frá nokkrum strákum sem með Alfreð í fararbroddi byrjuðu með tvær hendur tómar og gerðu Loftleiðir að stærsta viðskiptaævintýri Íslands á 20. öld. Saga Loftleiða var ævintýri líkust enda fóru þeir ótroðnar slóðir og hösluðu sér völl þar sem aðrir og stærri aðilar töldu sig eiga einkarétt. Ríkisflugfélög Evrópu reyndu ítrekað að bregða fæti fyrir Loftleiðir. Oft komust þeir félagar í hann krappan en sigurstundir voru líka margar. Loftleiðir voru með starfsemi um allan heim, eins og sagt var um br    eska heimsveldið á sínum tíma settist sólin aldrei hjá Loftleiðum því svo útbreidd var starfsemi þeirra. Eftir að Loftleiðum var úthýst af innnanlandsmarkaði á Íslandi 1952 gerðu þeir heiminn að sínu markaðssvæði og urðu risafyrirtæki eins og áður segir. Sem dæmi um umsvif Loftleiða má nefna, að árið 1968 aflaði félagið ríflega þrefalt meiri tekna en togarafloti Íslands samanlagður. En því miður voru örlög Loftleiða dapurleg og eru þau m.a. rakin í myndinni. Hið jákvæða er þó að Íslendingar geta státað af stóru áætlunarflugfélagi sem byggir starfsemi sína ennþá á grunni leiðakerfis sem Loftleiðir byggðu upp.

Myndin tók 4 ár í vinnslu og er tveggja klukkustunda löng. Við gerð myndarinnar var stuðst við bókina Alfreðssaga og Loftleiða, fundagerðir, kvikmyndir, ljósmyndir, blaðafyrirsagnir, auglýsingar og annað kynningarefni frá félaginu. Myndin um Alfreð Elíasson og Loftleiðir er fyrsta íslenska kvikmyndin í fullri lengd sem sýnd verður í nýju háskerpu digital sýningarkerfi Sambíóanna.

Missið ekki af þessu einstaka tækifæri að sjá þessa frábæru mynd sem er uppfull af fróðleik, skemmtilegum frásögnum, og gömlum myndum sem aldrei hafa birst áður.

Sjá einnig:

http://www.sambioin.is/?pageid=10&movie_id=573   og 

http://www.sambioin.is/?pageid=9&movie_id=573&attach_id=544



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.