Fréttir

Kvartað yfir fullgildingum flugskírteina til Evrópusambandsins

13.5.2009

FÍA og ECA hafa nú sent formlega kvörtun til Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins varðandi fullgildingu flugskírteina frá ríkjum utan sambandsins. Í þessu tilfelli er um að ræða flugmenn frá Venezúela sem eiga að fljúga vélum sem skráðar eru í Lettlandi og eru í eigu Icelandair Group. Þykir það með ólíkindum að það skuli líðast að Suður-Amerískir flugmenn sem ekki eru einu sinni með JAA flugskírteini, hvað þá atvinnuleyfi innan Evrópusambandsins, skuli fá að fljúga á flugrekstrarleyfi SmartLynx eins og að drekka vatn. Þetta brýtur í bága við alla almenna vinnulöggjöf í hinum siðmenntaða heimi. Hér er hægt að sjá afrit af bréfi ECA til Evrópusambandsins.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.