Fréttir
Opiđ bréf til stjórnar Icelandair Group hf.
Stjórn Félags íslenzkra atvinnuflugmanna (FÍA) lýsir yfir gríđarlegum vonbrigđum međ ađ Icelandair Group hf skuli manna flugverkefni sín erlendis međ flugmönnum sem ráđnir eru sem verktakar í gegnum áhafnaleigur í skattaskjólum. Ţetta er sérstaklega dapurlegt í ljósi ţess ađ fćra má rök fyrir ţví ađ íslenska ríkiđ fari í dag međ um ţrjá fjórđu hluta hlutafjár í félaginu.
Um sextíu flugmenn FÍA sem starfađ hafa hjá Icelandair Group hf / Icelandair ehf eru án atvinnu í dag og flestir ţeirra á atvinnuleysisbótum hjá íslenska ríkinu. Ţrátt fyrir ađ flugverkefni séu fyrir hendi hjá Icelandair Group hf er ţessum mönnum haldiđ utan ţeirra.
Nýveriđ kom inn á borđ fyrirtćkisins leiguflugsverkefni erlendis sem til stóđ ađ flugmenn Icelandair ehf ćttu ađ vinna. Var búiđ ađ kynna ţađ stéttarfélaginu og hópur flugmanna kominn međ ţetta á sínar vinnuskrár. Án fyrirvara var ţetta verkefni fćrt frá Icelandair ehf og öđru dótturfélagi Icelandair Group hf – SmartLynx í Lettlandi faliđ ađ sinna verkefninu. Til ađ sinna störfum flugmanna voru frekar endurráđnir verktakaflugmenn í gegnum áhafnaleigu á Guernsey í stađ ţess ađ endurráđa atvinnulausa flugmenn á kjarasamningi stéttarfélagsins.
Ţetta gerist ţrátt fyrir ađ samkvćmt kjarasamningi FÍA viđ Icelandair Group hf /Icelandair ehf skal verkefni ţetta mannađ flugmönnum Icelandair ehf og ţađ myndi ţýđa vinnu fyrir fjölda atvinnulausra flugmanna Icelandair ehf sem nú eru á atvinnuleysisbótum. Ţessir sömu flugmenn myndu greiđa skatta af launum sínum til íslenska ríkisins í stađ ţess ađ vera á bótum og ţannig leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Af ótrúlegri óbilgirni og ósveigjanleika vill stjórn Icelandair Group hf fćra störf ţessi í hendur flugmanna, sem ráđnir eru í gegnum áhafnaleigu í skattaskjóli sem gerviverktakar.
Ţađ verđur ađ teljast međ ólíkindum hve skilningsleysi stjórnar ţessa umsvifamikla flugrekanda á Íslandi í garđ sinna eigin flugmanna ristir djúpt og hve löngun Icelandair Group hf til ţess ađ létta undir međ íslenskri ţjóđ ristir grunnt. Nú ţegar alvarlegar horfir í efnahagsmálum ţjóđarinnar en nokkru sinni fyrr, efnir stjórn fyrirtćkisins til illinda viđ stéttarfélag atvinnuflugmanna á Íslandi.
Međ vísan til ástands efnahagsmála á Íslandi hefur stjórn FÍA ekki viljađ láta sverfa til stáls í ţessu mikla réttlćtismáli. Nú er hvorki stađur né stund til ţess ađ standa í harđvítugum átökum um ţađ sem viđ teljum rétt okkar fólks til vinnu. Átök nú myndu skađa íslenskt ţjóđarbú. Ţolinmćđi okkar er hins vegar á ţrotum og ţví viljum viđ vekja athygli stjórnvalda og almennings á ţessari stöđu. FÍA hefur ţegar hafiđ undirbúning ađ málshöfđun fyrir Félagsdómi vegna meintra brota Icelandair Group hf / Icelandair ehf.
Stjórn Félags íslenskra atvinnuflugmanna skorar á stjórn Icelandair Group hf. ađ breyta afstöđu sinni.
Stjórn Félags íslenzkra atvinnuflugmanna (FÍA)

