Fréttir

Fréttatilkynning - Uppsagnir flugmanna Landhelgisgæslu Íslands

25.2.2009

Félag Íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) harmar fjársvelti Landhelgisgæslu Íslands, sem birtist í niðurskurði á öllum sviðum stofnunarinnar - og nú síðast með uppsögnum á þremur þyrluflugmönnum. Þetta gengur þvert gegn yfirlýstri stefnu stjórnvalda um að efla Landhelgisgæsluna, ekki síst í ljósi breyttra aðstæðna eftir brotthvarf varnarliðsins.

Ef þyrluflugmönnum Landhelgisgæslunnar verður fækkað þýðir það skerta þjónustu, m.a. við sjófarendur. Fram til þessa hefur fjöldi flugmanna Landhelgisgæslunnar varla dugar til að hægt væri að manna tvær vaktir, sem er forsenda þess að hægt sé að fara í björgunarflug út á opið haf.

FÍA skorar á Ríkisstjórn Íslands að hlutast til um að Landhelgisgæsla Íslands fái það fé sem þarf til að hægt verði að reka stofnunina með sómasamlegum hætti.

 

f.h. FÍA

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Formaður.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.