Fréttir

Aðalfundi FÍA 2009 lokið

13.2.2009

Fimmtudagskvöldið 12. febrúar s.l. var haldinn aðalfundur FÍA 2009. Var fundurinn haldinn á Grand hótel og var mæting félagsmann góð, eða 216 fundarmenn og mættu 134 þeirra með umboð fyrir aðra þannig að gild atkvæði á fundinum voru alls 350.

Kosin var ný stjórn félagsins og í formannskosningu bar Jóhannes Bjarni Guðmundsson sigur úr býtum eftir kosningabaráttu við mótframbjóðanda sinn, Hafstein Pálsson. Jóhannes Bjarni hlaut 199 atkvæði en Hafsteinn 141, auð atkvæði voru 6.

Halldór Sigurðsson var sjálfkjörinn varaformaður þar sem hann var einn í kjöri en meðstjórnendur voru kosnir:

Haraldur Óskarsson, Atlanta

Jón Þór Þorvaldsson, Icelandair

Ólafur Georgsson, Flugfélag Íslands

Þorsteinn Kristmannsson, Icelandair

Örnólfur Jónsson, Icelandair

Af öðrum málum má nefna tillögur sem lagðar voru fram um breytingar á lögum félagsins sem allar náðu fram að ganga að undanskilinni tillögu um breytingar á skipun í trúnaðarráð félagsins, sem var felld. 190 greiddu atkvæði með, 95 á móti og 28 sátu hjá. En samkvæmt lögum félagsins verða lagabreytingar að hljóta tvo þriðju atkvæða fundarmanna til að öðlast gildi.

Aðrar lagabreytingar, sem flestar lutu að heimildum til að framkvæma kosningar rafrænt, voru samþykktar.

Fundargerð fundarins verður birt í heild sinni á læstum hluta vefsins fyrir félgasmenn til skoðunar á næstu dögum.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.