Fréttir
Varðandi rafræna kosningu á stjórn
Eins og kynnt hefur verið á síðum fréttabréfs okkar hefur staðið til að kjósa rafrænt til stjórnar fyrir aðalfundinn sem haldinn verður nú þann 12. febrúar. Í ljós hefur komið að það mun ekki ganga þar sem lög FÍA heimila það ekki. Tæknin er til staðar og tilbúin.
Til að mögulegt sé að nýta þessa tækni verður því að fara fram ákveðin lagabreyting sem afgreiða þarf á aðalfundinum núna til að hægt sé að nýta þennan kost fyrir næstu kosningar.
Um er að ræða 16. grein laga þar sem sagt er að "Stjórn félagsins skipa sjö aðalmenn og tveir til vara, kosnir á aðalfundi samkvæmt 28. grein." þá stendur í 28. grein: "Fulltrúar í stjórn og trúnaðarráð skulu kosnir á aðalfundi" en þessum klausum þarf að breyta þar sem gefinn yrði kostur á að nýta alsherjaratkvæðagreiðslu skv. 33. grein sem yrði í tengslum við aðalfund.
Búið er að gera drög að lagabreytingum þessa efnis sem kynntar verða félagsmönnum von bráðar.

