Fréttir
Starfsmenntasjóður minnir á umsóknarfrest fræðslustyrks
Sælir félagar,
Við hjá Starfsmenntasjóði viljum minna á umsóknarfrest til fræðslustyrks sem að rennur út núna 1.febrúar. Allar upplýsingar og umsóknina er að finna á vefnum okkar. Félagsmenn tóku þessari nýjung vel og sóttu þónokkrir um styrk síðastliðinn október, en þá var fysta úthlutun sjóðsins frá upphafi.
Styrkir eru greiddir út tvisvar sinnum á ári og þurfa umsóknir að berast til sjóðsins fyrir 1. þess mánaðar þegar stjórn sjóðsins kemur saman (febrúar og október). Athugið að mikilvægt er að öll gögnin berist samtímis þ.e. umsóknin og greiðslukvittun. Greiðslukvittun má ekki vera eldri en 9 mánaða.
Fyrirspurnir er hægt að senda á starfsmenntasjodur@fia.is
Kv.Starfsmenntasjóður

