Fréttir
Vefkosningu lokið
Núna síðastliðnar vikur hefur verið í gangi reynslukosning á vef FÍA sem lauk nú á miðnætti 26. desember. Kosningin gekk vel og stóðst kerfið allar okkar væntingar.
173 kusu sem er um 27% þátttaka sem þó er undir væntingum.
Kosið var um 2 hluti:
| Hvað viltu gera við Reykjavíkurflugvöll? | Atkvæði |
| Reykjavíkurflugvöll burt | 8 |
| Völlinn áfram í óbreyttri mynd | 114 |
| Völlinn áfram í breyttri mynd | 50 |
| Skila auðu | 1 |
| Á að opna aftur braut 25/07 í Keflavík? | Atkvæði |
| Opnum aftur braut 25/07 í KEF | 152 |
| Opnum ekki aftur braut 25/07 í KEF | 8 |
| Skila auðu | 13 |
Þökkum þátttökuna og gaman væri að heyra frá notendum ef einhverjar athugasemdir eru um ferli kosningarinnar. Best er að fá slíkar athugasemdir á webmaster@fia.is.

