Fréttir
Til félagsmanna FÍA!
FÍA er að taka í notkun rafrænt kosningakerfi sem mun auðvelda kosningar
innan félagsins í framtíðinni.
Því er mikilvægt í framtíðinni að ef til breytinga á tölvupóstfangi
kemur að það verði tilkynnt til FÍA.
Búið er að setja upp tilraunakosningu í nýja kerfinu sem hægt er að
nálgast á netinu á slóðinni www.fia.is/kosningar, en einnig er kominn
hnappur á forsíðu www.fia.is sem hægt er að smella á. Gott væri ef sem
flestir prufuðu kerfið til að virkni þess sanni sig áður en við tökum
það í notkun í raun.
Kosningakóði hefur verið sendur á alla félagsmenn með tölvupósti.
Kosningin verður opin til miðnættis föstudaginn 26. desember 2008.
F.h. FÍA
Kjartan Jónsson
Vefstjóri FÍA

