Fréttir
Kjarasamningur undirritaður við Norlandair
Forsvarsmenn Norlandair og FÍA skrifuðu undir kjarasamning 31. október s.l. sem gildir til eins árs. Þetta er fyrsti kjarasamningur sem Norlandair gerir, en félagið er að taka m.a. við rekstri á Twin Otter vélum sem Flugfélag Íslands hefur rekið fram til þessa. Ráðgert er að 6 flugstjórar verði leigðir til Norlandair fyrsta árið, til að koma félaginu af stað. Samningurinn byggir á samningum sem FÍA hefur áður gert við aðra sambærilega flugrekendur eins og flugfélagið Erni og Flugfélag Íslands. FÍA óskar flugmönnum og Norlandair til hamingju með samninginn.

