Fréttir

Enn meiri uppsagnir hjá Icelandair

28.8.2008


Nú hefur 8 flugmönnum til viðbótar verið sagt upp hjá Icelandair, þannig að heildin er komin upp í 96 flugmenn. 4 flugstjórar til viðbótar munu einnig skipta um sæti. Að sögn Hilmars Baldurssonar er ástæðan fyrst og fremst sú að áttmenningar sem fóru til Air Finnland eru með frí til 1. nóv og hafði fram að þessu verið reiknað með að þeir yrðu áfram úti, þeir hafa ekki fengið nein svör frá Air Finnland og eru nú að verða svartsýnt að þeir verði áfram úti, leiguflugsmarkaðurinn er orðinn mjög dapur eins og ljóst er orðið. Reiknað er með að allar þessar uppsagnir taki gildi nú í vetur.

Hilmar segir að eins og staðan er núna á mörkuðum sé hann ekki bjartsýnn á leiguflug í vetur sem þýðir að fyrstu menn fara að koma inn þegar áætlun Icelandair fer að stækka aftur næsta vor sennilega um mánaðarmótin apríl maí.

"Þetta er sveifla sem við þekkjum vel úr fluginu, hygg að flestir þeir sem eru  í starfi hjá Icelandair hafi gengið í gegnum svona tíma og það mun birta upp aftur eina sem við vitum ekki er hvenær. "Segir Hilmar ennfremur.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.