Fréttir
Drekinn 2008
11. sept. verður haldið "sveitaball" á vegum FÍA og FFÍ. Verkefnið hefur hlotið vinnuheitið "Drekinn 2008". Þetta verður nánar auglýst síðar, nú er bara verið að hvetja fólk til að panta sér frí. Látum fylgja með auglýsingu sem var birt á vef FFÍ.
Kveðja skemmtinefndin.
---------
Hæ hæ öll saman
Nú er á dagskrá heljarinnar ball sem haldið er i Hlégarði Mosfellsbæ 11.september.
Þema kvöldsins er kúrekahattur en fólki er frjálst að mæta í hverju sem því listir.
Verður þetta í anda sveitaballanna "in the old days" og ætlum við að rífa upp andann í flotanum og dansa og skemmta okkur eins og við erum sérfræðingar í að gera!
EUROBANDIÐ mun sjá um dansgólfið og við öll um stemninguna!
Miðaverð verður 1500 kr og opnar húsið kl.20:00. Takið daginn frá og ekki missa af þessu einstaka tækifæri!!!

